Mikil gleði ríkir nú í Seðlabankanum og hjá Fjármálaeftirlitinu eftir að fréttist af boði Ingibjargar Pálmadóttur til starfsmanna. Eins og alþjóð veit hafa Ingibjörg og Jón Ásgeir nýlokið við hönnun á snekkjunni sinni sem staðsett er á Cayman Islands.
Snekkjan sem er af gerðinni Trillioneros amigos er búin i,helicopter, loftbelgjum og lifandi sæhestar dansa í kringum hana. Ingibjörg hefur miklar áhyggjur af vinnuálagi opinberra starfsmanna og hét því í boðskorti sínu að allir starfsmenn Seðlabankans og Fjármáleftirlitsins fengju afnot af snekkjunni þegar sláturvertíðinni hjá viðskiptabönkunum lyki.
Stjórnmál og samfélag | 16.10.2008 | 18:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hitti Jónas í pottinum í morgun og hann sagði mér að þeir hjá Félagi Bláeygðra Sakleysingja hefðu átt obbann af þessum 130 milljörðum sem gufuðu upp í peningamarkaðssjóðum. Margir félagsmanna hefðu hringt í bankana sína síðastliðnar 2 vikur til að fá upplýsingar um hvort þeir ættu að selja, en verið eindregið ráðlagt að selja ekki af starfsmönnum bankanna.
Þeir hafa nú ráðið þá Benna og Arnþór til að sjá um innheimtuna fyrir sig og segja þeir félagarnir að Gordon Brown guðfaðir þeirra ætli að senda Kínverska sendinefnd til landsins sem sérhæfir sig í vatnspyntingum enda sé mun árangursríkara í dag að notast við dannaðar og siðmenntaðar aðferðir. Þeir hafa tekið á leigu Egilshöllina og verður öllum jakkafata-vítisenglunum safnað saman þangað.
Stjórnmál og samfélag | 16.10.2008 | 17:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nú hafa smákrimmarnir Árni Þór og Kristján Ra keypt leikhús í Stokkhólmi fyrir peningana sem þeir stálu á Íslandi og fyrsta leikritið að koma á fjalirnar. Segir það frá siðleysi og spennufíkn útrásarvíkingana Milla og Nilla sem komast yfir gamla síma og veðsetja fyrir 10 milljarða. Leikritið heitir Hí á Ísland.
Stjórnmál og samfélag | 16.10.2008 | 16:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Frábærar fréttir berast nú fyrir skíthrædda auðmenn af að Bakkavararbræður byggi í gríð og erg neðanjarðarbyrgi í Fljótshlíðinni. Þetta verða að teljast góðar fréttir fyrir þá Björgúlfsfeðga, Pálma, Jón Ásgeir, Bjarna Ármanss, Kjartan Gunnars og fleiri, að geta nú haft öruggt athvarf einhversstaðar.
Annars bíð ég spenntur eftir að sérsveit lögreglunnar umkringi höfuðstöðvar sjálfstæðisflokksins í Valhöll og handtaki jakkafata-vítisenglana fyrir hryðjuverk gagnvart þjóðinni.
Er ekki gaman að vera skuldsettur öryrki á Íslandi?
Stjórnmál og samfélag | 16.10.2008 | 12:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kannski að það sé bara æðsta ósk þjóðarinnar að Davíð og almættið mingli dáldið saman núna, við gætum þá allavega sagt eitthvað fallegt um hann og rifjað upp útvarp Matthildi.
Davíð lét allavega bara risann fleka sig og átta einga smásteina til að rota hann
Stjórnmál og samfélag | 16.10.2008 | 11:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það vildi ég óska að Dagur Eggerts, sá vonlausi pólítíkus og frasakarl drifi sig aftur í læknastörfin, að láta þjóðina borga fyrir sig rándýra menntun og vera svo bara vingull og vesalingur sem ætlar bara að reyna að vinna með kjaftinum. Dagur þegar þú eldist áttu eftir að líta tilbaka og fá mikinn kjánahroll þegar þú skoðar sjálfan þig og frasana.
Ég skora á alla þáttastjórnendur og blaðamenn í útvarpi og sjónvarpi að láta svona pappakassa eiga sig og vera ekki að púkka upp á þá með því að tala við þá.
Það sagði mér einu sinni blaðamaður á Séð og heyrt að mjög margar greinar sem birtar væru í blaðinu væru vegna þess að fólk hringdi til þeirra og bæði þá að birta myndir og greinar af sér.
Gaman þætti mér ef fjármál, fjármálaráðherra væru rannsökuð
Nú hefur komið í ljós að Sjálfstæðismaðurinn Björgólfur Guðmundsson sem mikið hefur verið hampað er bara krimmi og óreiðupúki og Sjálfstæðismaðurinn Kjartan Gunnarsson er bara svakakrimmi og svakaóreiðupúki.
Ef einhver Íslendingur á eftir að vera í þeirri stöðu að vera að koma út úr kjörklefa og hafa kosið X-D skora ég á viðkomandi að keyra hið snarasta upp á geðdeild og láta skella sér í spennitreyju til að gera ekki meiri óskunda.
Sjálfstæðisflokkurinn (orðskýring 'eg um ég frá ég til ég flokkurinn) og hans tindátar eru búnir að nauðga okkur fólkinu svo svakalega að öll áfallahjálp heimsins er okkur nauðsynleg.
En annars er ég bara nokkuð kátur því Nýtt Ísland er í vændum.
Stjórnmál og samfélag | 16.10.2008 | 10:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í dag byrjaði bullshittið upp á nýtt í Glitni þegar þeir mæla með kaupum á bréfum í Össuri. þeir halda kannski að hrunið sé búið, en það er bara rétt að byrja. Það er greinilegt að ríkið er ekki búið að losa sig við greiningardeildar liðið og nú á að byrja á kjaftæðinu upp á nýtt.
Varúð ekki kaupa hlutabréf í neinum fyrirtækjum, því snjóflóðin eru ennþá efst í brekkunni.
Stjórnmál og samfélag | 13.10.2008 | 23:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Samkvæmt skoðanakönnunum eru 92% landsmanna óánægð með störf Árna.Skildi það eiga eftir að breytast?
Veit um aldraðann mann sem hefur árangurslaust reynt að ná viðtali við Árna í gegnum Fjármálaráðuneytið í fjölda mánaða. Sá gamli segist halda að Árni sé að bíða eftir dánartilkynningu sinni til að geta boðað sig í viðtal.
Hitti konu sem vann lengi vel í mötuneytinu í Arnarhvoli, spurði hana hvort Árni hefði ekki oft snætt með samstarfsmönnum sínum, aldrei sagðist hún hafa nú séð hann enda altalað víst að hann sé ekki mikið fyrir félagsskap samstarfsmanna sinna.
Fundað stíft með IMF | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 12.10.2008 | 22:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Stjórnmál og samfélag | 12.10.2008 | 21:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gísli Marteinn: Vill frekari skýringar á Rússaláni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 12.10.2008 | 12:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- frábært að hafa 63 sinfóníuvanvita í dag. Kaupið ykkur kaðal ...
- Muna svo að kjósa Sjálfstæðisflokkinn í næstu kosningum og sv...
- Dýrð sé guði í upphæðum........................................
- Það á ekki af Íslensku þjóðinnni að ganga...
- Ring Ring, Ring Ring............................................
Bloggvinir
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Erlent
- ESB bannar notkun á BPA í umbúðum um matvæli
- Níu handteknir vegna brunans á skíðahótelinu
- Trump myndi hugnast kaup Musks á TikTok
- Hafa til klukkan 17 til að senda starfsmenn í leyfi
- Heita því að tryggja þjóðaröryggi sitt
- Sakar biskupinn um viðurstyggilegan tón
- Fjórir særðir eftir stunguárás í Tel Aviv